03september

Is this goodbye??


Jæja kæru vinir,
Ég ákvað að prófa nýtt bloggsvæði þannig endilega kíkja þangað og bæta við á netrúntinn Glottandi

Þetta er samt ennþá í svona testrun! ..ætla að athuga hvernig mér líkar þarna hinum megin

Hér er svo síðan : 

http://www.liljaingibjargar.blog.is
´
03. september 2008 klukkan 02:00
Lilja Ingibjargar
Engin athugasemd
28ágúst

Græðgin getur reynst mönnum skaðleg!


Í trimformi í morgun þá var ég aðeins svona að lesa blöðin og sjá hvað ber hæst í fréttum...
Auðvitað er koma handboltakappanna á hverri forsíðu og opnu og út um öll blöð, sem er nú svosem alveg skiljanlegt því þetta er rosa afrek hjá þessum drengjum!
...þrátt fyrir að ég horfði ekki á neinn einasta leik þá gef ég þeim klapp á bakið fyrir Glottandi

En það er nú ekki alveg það sem mér fannst standa uppúr því sem ég var að lesa í blöðunum. Heldur greinin um afmæli Dominos! Þar var verið að spjalla við framkvæmdarstjóran og hún sagði að fyrst þegar opnað var staðin hérna árið 1993 þá þurfti SJÚKRABÍL að hlúa að særðum kúnnum sem urðu svo æstir við að riðjast og troðast þegar hurðin var opnuð að staðnum!
*er það nú*

Sumir eru nú bara einfaldlega gráðugari en aðrir!!



Einnig sagði þessi blessaða kona að merki Dóminós merkir staðina 3 sem voru til í upphafi.
...þá meina ég nú í USA.
Vá! Bara 3 staðir!! Og hvað eru þeir búin að milljónfaldast núna?
..það þyrfti nú ansi margar doppur á eitt merki, heh

En annars hef ég afskap lítið að segja. Fannst þetta bara fyndin ,stórskrítin og einnig áhugaverð frétt Brosandi





- þessi bíll er notaður í USA til að keyra út, ha ha Hlæjandi
28. ágúst 2008 klukkan 13:50
Lilja Ingibjargar
1 athugasemd
22ágúst

Þreyta í loftinu....

Flestir sem þekkja mig vita að ég fer nokkuð oft til læknis og uppá spítala.
Í hvert einasta skiptið sem ég fer til lungnalæknisins míns, sem er nú þónokkuð oft, þá á meðan ég bíð eftir honum á biðstofunni kemur alltaf þessi svakalega þreyta yfir mig! 
Þó svo að ég hafi komið galvösk og spræk inn á stofuna...
Í eitt skiptið var ég alltaf að dotta, hausinn lak alltaf niður og svo á endanum sofnaði ég.
...nú, þangað til nafn mitt var kallað.
*ótrúlegt alveg*

Þau hljóta að setja e-ð í loftræstikerfið þarna!!



En nóg um syfju mína í læknisheimsóknum....
Ég sá litlu sætu áðan!
Brunaði alveg eins og ég veit ekki hvað því ég hlakkaði svo til að sjá hana.
Þegar ég loksins fékk að kikja á krúttið þá alveg táraðist ég hún var svo lítil og sæt og Telma svo falleg með hana.
Svenni er líka alveg fæddur í pabbahlutverkið og það er ekki að sjá að þau hafi bara verið að fæða lítið barn á Miðvikudagin.
*love jú most*



- þetta er auðvitað ekki "litla sæta" Glottandi

Menningarnótt og Sálin á morgun!
Reyndar var ég búin að ákveða að fara á Sálina alveg löngu áður en ég vissi að það væri Menningarnótt. 
Ég hefði kannski hugsað mig tvisvar um ef ég hefði gert mér grein fyrir því....troðningur, alltof mikið af fullu fólki, troðningur! 
Ég ætla bara snemma niður í bæ og frekar snemma af ballinu og ætli við endum ekki á Apó gellurnar Svalur
Það eru víst bara ég og Eva því Helga þarf að vinna.
*búhú*
En hún verður bara að koma með næst! Koss

Við Eva erum sko alveg með þetta á morgun!
Við erum með Rósavín, Freyðivín og svo Melon Mohito! 
*nammi namm*
Ég fékk oft svoleiðis í LA þegar ég fór á S-Bar. Þá eru reyndar waitress við borðið þitt og blanda hvað sem þú villt fyrir þig. 
OOOOG auðvitað allt frítt Svalur



::.Hlakka til að hitta þig á morgun beibís.::



22. ágúst 2008 klukkan 20:00
Lilja Ingibjargar
2 athugasemdir
20ágúst

**Litli engillin komin í heimin**


Lítil sæt og DÖKKHÆRÐ stelpa fæddist í dag kl. 16:41. 21 merkur og 56cm.
Alltaf héldum við Telma að hún fengi rauðleitt hár eins og pabbi sinn en hún er svo viljasterk líkt og mamma þannig hún vildi bara vera ALVEG eins Hlæjandi

Ég get ekki beðið eftir að fá að sjá litlu sætu. Ætla með mesta magni að reyna að sjá hana á morgun, en vill nú leyfa Telmu minni að hvíla sig aðeins áður en ég fer að knúsa þær báðar og kyssa.
Ég fer allavega pottþétt til hennar á föstudagin, bókað mál!
*vá alveg strax komin með fiðrildi í magan*



::. Elska ykkur Telma og Svenni og lýt mjög upp til ykkar hvað þið eruð að takast á með að fæða litlu krútt í heimin. Ég mun alltaf vera ykkur innan handar, hvað sem ykkur vantar .::



Annað tilhlökkunarefni sem er vart hægt að líkja við þetta kraftarverk, er að ég er að fara að hitta Helgu og Evu á laugardagin. Það er alltaf svo yndislegt þegar við 3 hittumst. Vonandi fær þó Helga frí í vinnunni á laugardagin.
Við ætlum að hittast allar hjá Helgu, sötra vín og enda kvöldið á frozen kokteils áður en haldið er niður í bæ og horft á flugeldana og dansað við Sálina Hans Jóns míns!
*svo mikið æði hljómsveit*



Ég vil einnig koma hér að í endan að ég hvet alla til að fara í Trimform Berglindar og koma sér í brjálað form!
Það þarf ekki mikið til og ekki marga tíma til að sjá árangur.
Þú sérð strax árangur á þér á fyrsta tíma.
Eina sem þarf til er góð ástundum og holt mataræði :)
Ég er búin að vera hjá Gunnu í Trimforminu síðan eg var 19 ára og aldrei verið ánægðari með líkaman minn.
Þau bjóða þig líka velkomna með opnum örmum, gleðja þig með hlýjum orðum og nærveru sinni.
KossPanta sér prufutíma í dagKoss



20. ágúst 2008 klukkan 18:55
Lilja Ingibjargar
1 athugasemd
18ágúst

::.Tilhlökkun.::

Uppáhalds vinkona min er sko aldeilis ekki "alveg að springa"!
Því það finnst mér ljótt að segja um ófrískar konur sem eru alveg að því komnar að fara að eiga...
Hún Telma bestasta vinkona mín er alveg að því komin að fæða lítið, sætt stúllkubarn inn í þennan heim og ala það upp með kærleik og alúð. 



Ég get ekki beðið eftir að fá símhringinguna frá henni sem færir mér þær fréttir að sú litla sé komin svo ég geti litið hana augum, öðrum augum en ég hef séð hana undanfarið, sem mun vera sónarmyndir.



Mamma og ég vorum að ræða saman um þetta um dagin og ég fór svona að hugsa með mér....ég hafði aldrei ímyndað mér Telmu sem mömmu. Með fullt af leikföngum í kringum sig, litla dúllan á fullu spani og Telma að þvo þvott og elda á sama tima. 
Vá, hvað mér fannst það skrítið en samt ánæguleg tilhugsun!

Ég get ekki beðið eftir þér litla sæta krúsímús! 

xoxo
- Lilja Ingibjargar











Photos by: Arnold; Hair: Elli; Make up: Katla.

Fleiri myndir eru á myspace: http://www.myspace.com/lilja_ingibjargar



p.s. eg er að íhuga á að byrja að blogga aftur....
18. ágúst 2008 klukkan 00:11
Lilja Ingibjargar
Engin athugasemd
10júlí

THE END!


ÉG ER HÆTT, NENNI EKKI MEIR!!

-mj
á




 

10. júlí 2008 klukkan 18:31
Lilja Ingibjargar
3 athugasemdir
27maí

mjá mjá



Ég fékk svaka gubbupesti í seinustu viku, byrjaði að vera rosa slöpp í vinnunni en harkaði mér þó pínu í ræktina.
...ég var alveg að drepast um kvöldið úr hausverk og magaverk, hélt bara að ég hefði ofgert mér þennan dagin.
Ég vaknaði svo um nóttina alveg að DREPAST í maganum, gat ekki sofið. Ákvað þá að fara fram og fá mér e-ð í svangin og gá hvort það lagðist e-ð en svo var ei!.
...bara verra og verra þangað til ég þurfti að hlaupa á klósettið og æla herlegheitunum út.
Svo hljóp ég á klósettir á 15-30 mín fresti og svaf inn á milli alveg uppgefin!
... þetta stóð á alveg í sólarhring!
LANGAN sólarhring!!!!!
Ég hef sjaldan lent i öðru eins!
...oftast gubba ég 1-5 en ekki svona svaka oft

Ég sofnaði meira segja inná baði í eitt skiptið ég var svo uppgefin.

Þetta langar mig ALLS ekki að upplifa aftur Skömmustulegur




Á fimmt. + föst. var ég að leika í SS auglýsingu.
Ja ég veit!
...ég hló líka upphátt þegar ég frétti þetta! Glottandi
Mjög skemmtilegt þó ,fyndin auglýsing og ég kynntist mjög skemmtilegri stelpu, henni Kristínu Leu sem var með mér þarna



Ég er svo að fara í annað módel job. núna á fimmtud. sem birtist að ég held þarnæsta föst. í fréttablaðinu. E-ð job fyrir MAC.



Lilja litla er að fara að breyta lookinu sínu, eða öllu að heldur hárinu!
Ég hlakka rosa til en kvíði líka fyrir því ég er búin að vera ljóshærð núna í 4 ár!!
En það er nú alltaf hægt að lita þetta til baka ef mér líkar þetta ekki Hlæjandi






Ég fór til Telmu á laug, fórum í mat til fjölskyldu hennar sem var ÆÐI og horfðum á júró þar.
Alltaf svo yndislegt að hitta mömmu hennar og Guðmund, mér þykir svo óendanlega vænt um þau.
Eftir júró þá hlömmuðum við Telma okkur í sófan í nýju, flottu íbúðini hennar og horfðum bara á kósí vidjó meðan allir vitleysingarnir helltu sig blindfulla!

Það er alveg ótrúlegt, sama hversu langt líður á milli að ég og Telma hittumst..það er alltaf jafn eðlilegt og þæginlegt að vera í kringum hana og við finnum okkur alltaf e-ð að tala um.
..aldrei óþæginlegar þagnir eða vandræðilegt eftir langan tíma
*love jú most*





27. maí 2008 klukkan 00:58
Lilja Ingibjargar
2 athugasemdir
14maí

komin til landsis!


Gat ekkert bloggað úti vegna tölvuleysis....

Núna er ég back og hress og í stuði Koss

NYC var æðisleg og frábær og ekkert smá skemmtilegt hjá okkur Telmu, fyrir utan fyrstu 3 dagana sem verða ekkert ræddir hérna á vereldarvefnum! 



Við skemmtum okkur þó sem eftir var þó svo síþreyta og orkuleysi voru að buga okkur fyrst :

  • Rætt var við skóla
  • farið til Atlantic City í limmu og spilavíti
  •  gist í skringilegu herbergi 
  • borðað sushi daglega
  • , tekið high class djamm
  • ride the bull á country club
  • farið á celeb/fancy sundlau á toppi háhýsis
  • farið í hjólataxi - MJÖG SCARY...hehehe 
  • .....og MARGT fl. 











Ég varð svo svaka veik í endan og gat ekkert verslað líkt og ég ætlaði, hékk bara inni meðan Telma kom með hvern pokan á eftir öðrum heim, hehe. 
Svo gat ég ekki farið til LA svona og í þokkabót alein að gera alla þessa hluti sem ég þurfti að gera..
Fór því til frænku minnar í New Jersey að jafna mig og auðvitað hitta hana því hún er svo æðisleg.



Roommate-inn minn ætlar að selja bílinn minn fyrir mig því hann er GREAT! ....og annað hvort fer ég aðra ferð til LA þegar ég fæ another módel/commercial job þar eða læt senda þau bara.. 
*nó prob*

Vinnan byrjar á Laugadaginn og svo á fullu eftir það. Mjög þægjó að hafa e-ð að gera loksins og passar mjög vel því ég er hætt að vera veik.
Svo er módeljob á þriðjudagin sem þið fáið að sjá í júní.
*hlakka til að sjá útkomuna*

Ég og Gummi ætlum að reyna að fara í leikhús á föstudagin.
Vá hvað er langt síðan ég hef farið í leikhús!!!
Get ekki beðið!!!! Hlæjandi






14. maí 2008 klukkan 02:00
Lilja Ingibjargar
1 athugasemd
18apríl

"Góðan Dagin"


Þegar ég var lítil þá bauð ég öllum "góðan dagin" þegar ég var úti að leika / á labbinu. 
...eiginlega oftast eldra fólki því ég var bara svo kurteis e-ð og fólk brosti svo blíðlega til mín. Hlæjandi

Meðan ég bjó í New York þá fékk ég alltaf "Good Mornign" "How are you today" eða e-ð þvíumlíkt. 
En BARA frá karlmönnum! Þögull sem gröfin 
...og oftast svona eldri menn, hehe
Og tók ég eftir að þeir endurtóku ekki leikin við næstu manneskju eftir mér.
- enda OFUR margir sem búa í New York og þeir væru nú orðnir frekar hásir eða þá mállausir eftir dagin ef þeir myndu halda svona áfram, ha ha Hlæjandi

 ** Núna er ég bara mjög fegin að það bjuggu ekki margir í Reykjavík þegar ég var lítil **


- Nýjasta myndin frá Lalla, make up by: Henný
18. apríl 2008 klukkan 14:51
Lilja Ingibjargar
1 athugasemd
16apríl

::.Folaveisla.::




Nú eru eingungis 4 dagar í stelpuferðina okkar ógarlegu!
*fjút fjút*
Litla barnið í mér enn að telja niður dagana, heh.
..enda ekki annað hægt Ullandi

Þetta verður rosa stuð!
Við stelpurnar erum að fara að planaleggja ferðina í kvöld eftir vinnu hjá mér.
Ég vorkenni bara henni Lindu því ég get ekki kynnt henni fyrir hot módelgaurum úti, líkt og þessum:



og þessum :



En þetta eru t.d. bara 2 af STÓRU úrvali þarna úti!!
Gleymum öllum stuck upp ególegum íslenskum strákum í þessari ferð stelpur.
...eða ég og Telma, ha ha

Vá frétti að símaauglýsingin væri komin í Kringluna.
...ég er nefnilega ekki búin að sjá hana né fá myndirnar sendar frá Ara Magg.
Þannig þegar ég var með vinkonu minni i kringlunni þá ákvað ég að kikja í símabúðina og sjá auglýsingarnar.
NEI!! ...ég komst nú ekki lengra en að rúllustiganum hjá Hagkaup og þá blöstu við mér RISA augl. spjöld um ALLA kringlu!!
- - ég setti bara upp sólgleraugun - - Svalur
*ha ha*
Vildi helst ekki að fólk sæi mig skoða þetta, hehe
Náði þó að labba inn í símabúð og þar er allt MORANDI í augl.
úff, hvað ég vildi ekki vera egill og rebekka núna að labba inn í kringlu.
haha, það er svona spjald með mynd af þeim nema búið að taka hausin af til að setja þinn haus inn.
MJÖG SKONDIÐ! Hlæjandi
Gaman að þessu,
Ég verð að vinna alveg þangað til ég fer út...
...í dag upp í baðstofu, á morgun og hinn í laugadalshöll með Lindu og svo laugardag upp í baðstofu..
Verð pottþétt einhverja nóttina bara að pakka.
*boring*



Ætla samt að fara á úrslitaþáttin í Bandinu hans Bubba, eftir vinnu á föst, og sjá Adda vinna þetta.
ALLIR að vera duglegir að kjósa hann!!!
*love jú addi babe*


´

16. apríl 2008 klukkan 16:14
Lilja Ingibjargar
1 athugasemd

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Lilja Ingibjargar
  • Netfang: LiljaCobain18@hotmail.com
  • Staður: Reykjavik

To kill time...